Leikkonan og nýjasta andlit L’oréal Blake Lively sagði í viðtali við Franska Vogue að hún sé einfaldlega grönn af náttúrunnar hendi og að henni leiðist líkamsrækt.
Leikkonan sem er gift hinum sykursæta Ryan Reynolds (sem leiðist alls ekki í ræktinni) sagði að hún væri ekki mikið fyrir það að stunda líkamsrækt. Hún lifi mjög ,,aktívum” lífstíl og að hún sé alltaf á ferðinni-það sé hennar rækt.
Þar að auki sagðist Blake hvorki þurfa þjálfara né næringarfræðing til þess að fylgjast með því sem hún borðar. Leikkonan byrjar hvern dag á bolla af heitu súkkulaði og endar daginn á því að fá sér nokkra dökka súkkulaðimola, að hennar sögn gerir þetta tvennt hana hamingjusama og heldur geðheilsunni í lagi.
(Ætli að fjölmiðlafulltrúi Blake hafi sagt henni að segja þetta? Ekki ósvipað og leikkonan Tori Spelling sem var neydd til að ljúga um heilsusamlegan lífstíl sinn á meðan hún svelti sig.)
Er Blake einfaldlega með svo góð gen að hún getur leyft sér að borða súkkulaði á hverjum degi, sleppt allri líkamsrækt og samt haldið sér sykursætri?
Hver veit, það kemur kannski í ljós eftir nokkur ár..
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig