Sælir kæru lesendur
Ég heiti Birna Íris og er ný viðbót í lið pjattrófupenna. Ég er make-up artist og hárstílisti að mennt og hef unnið við það síðan 2007 með námi. Mun leggja mitt af mörkum að deila með ykkur ýmsum pælingum og ástríðum sem yfirleitt tengjast mjög fallegum hlutum sem við konur segjumst oft “þurfa” að eignast – og bjútí ráðum sem ég hef pikkað upp í gegnum tíðina í bransanum.
Það sem liggur mér helst á hjarta þessa dagana eru húð og húðgerðir þar sem húðin mín berst iðulega við þessar blessuðu breytingar á veðri okkar hér á þessu fróni. Hlakka til að sjá hana blómstra á ný við inntöku D-vítamíns beislaðra sólargeisla þar sem ég er loksins farin að lofa freknurnar mínar, að sjálfsögðu með vörn í styrk 30.
Langar að pósta nokkrum myndum af förðun þar sem áherslan er lögð á fallega húð svona til að sýna fjölbreytileika í náttúrulegri förðun þar sem hækkandi sól, krossa fingur, fer vonandi að blessa okkur með nærveru sinni.
Þangað til…eplaedik í vatnsinntöku og hunang í andlit.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.