Hún var stimpluð sem kynbomba á sínum yngri árum og er það ekkert skrýtið ef litið er yfir ljósmyndir af henni frá þeim tíma.
Birgitte Bardot er fædd 28.september 1934. Hún er frönsk leikkona, fyrrverandi tískusýningarstúlka, ljósmyndafyrirsæta og söngkona. Hún var kynták 6. og 7. áratug 20.aldar.
Brigitte er ákafur dýraverndarsinni og hefur meðal annars barist fyrir því að selveiðar verði bannaðar. Hún hefur verið tilnefnd til BAFTA verðlaunanna og var í hópi 100 kvikmyndaleikkvenna sem Empire Magazine tilnefndi sem heitustu kyntáknin í kvikmyndasögunni. Eftir að hún hætti kvikmyndaleik á áttunda áratug síðustu aldar hóf hún að starfa í þágu dýraverndar og gerir það enn í dag. Á 10. áratugnum hóf hún að ræða pólitísk málefni eins og innflytjendamál og íslam í Frakklandi ásamt því að vera talskona samkynhneigðar.
Hún hefur verið gift fjórum mönnum. Fyrsti maður hennar var Roger Vadim (1952-1957), annar maður hennar var Jacques Charrier (1959-1962) og sá þriðji var Gunter Sachs (1966-1969) og loks Bernard d’Ormale sem hún hefur verið gift frá 1992.
Við óskum henni að sjálfsöguðu til hamingju með daginn.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.