Þrátt fyrir að stjörnuhjónin Beyoncé og Jay Z ætli sér ekki að mæta í brúðkaupið hjá Kim og Kanye þá var engu til sparað í brúðkaupsgjöfinni sem þau hafa nú þegar gefið verðandi hjónum
Jay Z og Beyoncé hafa gefið parinu brúðkaupsferð á snekkju sem þau leigðu fyrir litlar 19 milljónir króna.
Auk þess er Jay Z sagður vera að plana heilmikið steggjapartý fyrir vin sinn, sem haldið verður á klúbb Jay Z, 40/40 í New York.
Brúðkaupið fer fram í Frakklandi í næsta mánuði. Ástæðan fyrir því að Beyoncé og Jay Z ætli ekki að mæta er sú að þau kæra sig ekki um að taka þátt í raunveruleikasjónvarpi Kardashian fjölskyldunnar.
Stífar öryggisreglur eru auk þess fyrir alla gesti brúðkaupsins.
Farsímar verða teknir af gestum og þeir þurfa að skrifa undir þagnarsamning svo engar fréttir leki úr brúðkaupinu.
Kim og Kanye eru þó sögð vera tilbúin til að veita Beyoncé og Jay Z þá undantekningu að taka hvorki af þeim símana né láta þau skrifa undir samninginn.
Það verður gaman að sjá hvort Beyoncé og Jay Z láti sjá sig í brúðkaupinu eða láti rausnalega brúðkaupsgjöf nægja?
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com