Beyoncé sló heldur betur í gegn á Grammy verðlaunahátíðinni í gærkvöldi.
Á hátíðinni klæddist söngkonan kjól eftir Michael Costello. Hvítur blúndukjóll með flegnu baki. Krullað hár og vínrauðar varir fullkomnuðu svo heildarútlitið. Stórglæsileg!
Beyoncé kom svo fram á hátíðinni og söng lagið sitt, Drunk in love ásamt sínum heittelskaða Jay Z.
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=GDn1iCjd-Oo[/youtube]
Eitt stórt VÁ fyrir bæði framkomunni og kjólnum… kynþokkinn uppmálaður!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com