Beyoncé flutti lagið sitt ‘XO’ á BRIT verðlaunahátíðinni sem haldin var á miðvikudaginn í Lundúnum.
Það eitt og sér væri svosem ekki frásögu færandi nema vegna dressins sem hún klæddist, ferðamátans og jú svo er bara gaman að fylgjast með þessari konu!
Það dugir auðvitað ekkert minna en einkaþota til að koma söngkonunni milli staða.
Hún mætti á flugvöllinn klædd glimmerkjól undir bomber jakka og í strigaskóm við.
Það gæti ekki hver sem er látið þetta outfit ganga upp – en það gerir hún að sjálfsögðu með stæl!
Komin um borð í einkaþotuna! Glimrandi fínn ferðamáti!
Kjóll – Vrettos Vrettakos
Skartgripir – Lorraine Schwartz
Skór – Gianmarco Lorenzi
Hér sjáið þið svo flutning Beyoncé á hátíðinni…
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=2iYcCOImd0M#t=79[/youtube]
Þessi kona! Þessi hjón! Ég fæ ekki nóg af þeim!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com