Beyoncé er drotting (að eigin mati að minnsta kosti) og snobbið er svoleiðis að drepa hana að hún getur ekki einu sinni mætt í brúðkaup Kim og Kanye!
Reyndar segir Beyoncé að ástæða þess að hún ætli ekki í brúðkaup Kim og Kanye sé sú að hún hafi engan áhuga á því að koma fram í einhverjum raunveruleikaþætti en skötuhjúin ætla að láta sjónvarpsstöðina E! borga fyrir brúðkaup aldarinnar ef ekki bara besta brúðkaup sem haldið hefur verið!
Beyoncé finnst þetta fyrir neðan allar hellur en Kanye og Jay Z eru bestu bestu vinir og samstarfsmenn þannig að ég hugsa að það endi nú með því að Queen B verði að láta eftir.
Kannski er Beyoncé hrædd um að Kim fari að vinna sig í Instagram keppni en þær tvær eru ansi duglegar að setja inn myndir af sér, þó sérstaklega fáklæddum og Beyoncé slær ekki slöku við þrátt fyrir að geta sungið og dansað á meðan Kim skellir bara í duckface og sýnir rumpinn. Hér er Instagram síða Kim Kardashian og hér er Instagram síða Beyoncé.
Ég vona að Beyoncé og Jay Z mæti og geri svona eins og á myndinni þegar einhver “ómerkilegri” en þau heldur ræðu í veislunni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig