Söngkonan Beyoncé er ekki á leiðinni að stilla sér upp nakinn ef þú heldur það en hún lætur svo sannarlega vita að hún sé “Queen B” í nýjum myndaþætti.
Myndirnar eru teknar fyrir dagatal sem Beyoncé mun gefa út bráðlega en þetta mun vera fyrsta dagatalið sem söngkonan stillir sér upp á. Slík útgáfa er afar vinsæl vestanhafs svo það kemur á óvart að hún hafi ekki gert þetta fyrr.
Það er óhætt að segja að myndirnar af söngkonunni eru glæsilegar, hún sýnir smá hold (en ekki hvað) en er samt sem áður smekkleg, að minnsta kosti smekklegri en margar aðrar söngkonur þessa dagana.
Myndasafnið er að mestu leyti svart/hvítt og er að mínu mati mjög smart, njóttu myndanna hér að neðan.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig