Ekki hafa hjónakornin Beyoncé og Jay Z staðfest að söngkonan sé barnshafandi og vilja ekkert kannast við sögusagnir um að hún sé bomm.
Beyoncé var í viðtali við Today Show þar sem hún var spurð að því hvort að hún kannaðist við einhverjar sögusagnir um að hún væri ólétt, þá svaraði Beyoncé “sögusagnir, hvaða sögusagnir”? og lét þar við sitja.
Ekki vildi hún staðfesta hvort hún væri ólétt eða ekki og svaraði í raun og veru hvorki með já né nei.
Þokkadísin hló samt eins og enginn væri morgundagurinn og varð hálf kjánaleg þegar hún var spurð hvort hún væri ólétt sem þykir ýta undir þennan orðróm um að erfingi númer tvö sé á leiðinni.
Hún hefur samt sem áður haldið ótrauð áfram á tónleikaferð sinni fyrir utan eina tónleika sem hún aflýsti vegna veikinda. Nei eða já af eða á, þetta kemur í ljós von bráðar, við bíðum spenntar!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig