Það er alveg sama hvaða netmiðill er skoðaður í dag, það er allt logandi í fréttum af Beyoncé og hugsanlegri meðgöngu hennar!
Enginn úr herbúðum söngkonunnar vill staðfesta þessar fréttir en Beyoncé hefur aldrei farið leynt með það að hún vilji að Blue Ivy eignist annað systkini en litla daman er átján mánaða gömul.
Þegar Beyoncé mætti á MET Gala Ball byrjuðu sögusagnir um að hún væri ólétt en kjóllinn var þannig gerður að hann dró athygli að öllu öðru en maganum á henni.
Söngkonan hefur meira en nóg að gera þessa dagana en hún er sem stendur á fullu í Evróputúr sínum: “The Mrs Carter Show” og einhverjir áhorfendur segjast hafa séð smá kúlu á mallanum hennar á nýlegum tónleikum.
Fatnaður Beyoncé á tónleikaferðinni er afar efnislítill og þröngur og ef söngkonan er ólétt þá er alveg ljóst að það þarf að breyta fatnaðinum enda verður Beyoncé komin á steypirinn undir lok ferðalagsins ef sögusagnirnar eru sannar.
Þá er bara að bíða og sjá hvort að söngkonan er ófrísk og bíða eftir staðfestingu frá henni, Jay-Z eða fjölmiðlafulltrúa.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig