Söngkonan Beyoncé var ekki lengi að breyta um stíl en hún klippti allt hárið af sér fyrir um viku síðan. Um helgina kom söngkonan fram á V Festival þar sem hún sýndi enn eina klippinguna.
Beyoncé er komin með hina frægu ,,bob-klippingu” en engin önnur en Victoria Beckham gerði hana fræga fyrir nokkrum árum síðan. Mér sýnist margar aðrar frægar vera komnar með þessa klippingu- það er spurning hvort að þetta verði heitasta trendið í vetur? Það er óhætt að segja að þessi klipping fer söngkonunni mjög vel og vonandi breytir hún ekki strax um hárstíl.
Beyoncé sveik ekki tónleikagesti með flutning sínum og áhorfendur skemmtu sér konunglega á hátíðinni.
Sjáðu myndir af Beyoncé koma fram á V Festival hér fyrir neðan.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig