Þetta er án efa verst geymda leyndarmálið í skemmtanabransanum núna en það ku vera orðið staðfest að Beyoncé sé ófrísk í annað sinn.
Beyoncé hefur ekki verið dugleg að setja inn myndir af sjálfri sér á heimstúrnum og það er komin skýring. Hún vildi ekki að sögusagnirnar færu fyrr af stað og langaði að halda þessu leyndu sem lengst en þröngu gallarnir hennar komu upp um hana og mallakúturinn varð alltaf framstæðari og framstæðari.
Tónleikaferðalagið mun halda áfram en hún þurfti að aflýsa tónleikum í Belgíu um daginn og það ýtti svo sannarlega undir þessar sögusagnir um að hún sé ólétt. Þegar tónleikaferðalaginu lýkur mun söngkonan vera langt gengin með barnið og yfirmenn munu örugglega krefjajast þess að hún breyti dansatriðum eitthvað svo hún verði í fínu formi allt tónleikaferðalagið.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig