Elín Arnar hefur um árabil ritstýrt kvennablaðinu Vikunni með góðum árangri.
Hún kann að meta margt af því góða sem Reykjavík hefur upp á að bjóða meðal annars Kaffitár, Kex og Fjallkonubakaríið…
Besti veitingastaðurinn? Fiskifélagið
Besti skemmtistaðurinn? Kex
Besta kaffihúsið? Kaffitár Borgartúni
Besta hangsið? Fjallkonubakaríið
Besta hverfið? 101 Reykjavík
Besta bílaþvottastöðin? Svar óskast! Er enn að leita!
Besta útivistin og líkamsræktarstöðin? Hálendi Íslands og Grand Spa
Besta sundlaugin? Sundlaug Kópavogs
Besta bíóið? Bíó Paradís
Besti felustaðurinn? Heima er best
Besta þjónustan? Hótel mamma
Besta ísbúðin? YoYo
Besta húsið? Húsið mitt
Best að hætta? Að bora í nefið og fara að gera eitthvað að viti
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.