Það eru fáar fatabúðir sem selja jakka og kápur sem passa á mig, enda hefur hæð mín ekki unnið með mér í þessari deild hingað til eins og ég fjallaði meðal annars um í þessari grein minni.
Að finna blazerjakka, kápu eða bara yfirhöfn af einhverri tegund er algjör höfuðpína!
Ég gerði dauðaleit í tvö ár að leðurjakka þar til ég fann minnsta fullorðins leðurjakka sem ég hef séð í Karen Millen fyrir fimm árum og hin eilífa leit mín að blazer stóð þar til nú nýverið þar sem ég fann hann í Bershka.
Spænska verslunarkeðjan Bershka er algjör himnasending fyrir svona lág- og grannvaxnar konur eins og mig!
Hún hefur minnstu númer sem ég hef fundið, enda frá Spáni.
Ég fór fyrst inn í þessa búð þegar við Margrét systir mín fórum til Köln í Þýskalandi árið 2012. Eftir það hef ég reynt að finna búðina hvar sem ég fer erlendis enda fannst mér ég hafa himinn höndum tekið.
Ég fór síðast í verslunarferð í Bershka með Sophie vinkonu minni þegar ég heimsótti hana til Dublin núna í mars og ég hef aldrei átt jafn velheppnaða verslunarferð. Aldrei!
Yfirleitt er prógrammið svona þegar ég fer að máta föt: Ég máta 10-12 flíkur, ein passar.
Núna tók ég tvo blazer jakka, tvær kápur, tvö pils, peysu og tvo boli. Allt smellpassaði. Þvílík gleði!
Ef þú ert eins og ég, pínu lítill rindill sem leitar með sveitta efrivör í petite deildinni en allt er eins og það sé hannað á ferkantaða manneskju, – finndu þá Bershka næst þegar þú ferð erlendis og vonandi verður skemmtilegra að máta föt en áður.
Fötin eru ekki bara falleg og í skemmtilegum stærðum heldur eru þau líka á ótrúlega sanngjörnu verði.
Hér finnur þú meira um Bershka en verslunin er hluti af sömu keðju og Zara, Massimo Dutti ofl.
_______________________________________________________
Krabbastelpan Eva Rós er fædd árið 1989, á tvö börn og góðan mann. Eva er mikill áhugamaður um hverskyns gamanmál en einnig uppeldi, ferðalög, heilsu, líkamsrækt, vín, matreiðslu, veisluhöld, kokteilagerð og góða þjónustu. Mottó Evu í lífinu er einfalt: Hver er sinnar gæfu smiður