Leikarinn Ben Affleck á þrjú börn með eiginkonu sinni Jennifer Garner og eru þau hundelt alla daga af ljósmyndurum og papparössum.
Ben segist vera komin með miklu meira en nóg af ágangi ljósmyndara og vill að það verði sett lög um myndatökur af börnum á almennum vettvangi. Hann segir einnig að hann geti ekki farið út úr húsi með börnin sín án þess að ljósmyndarar séu komnir ofan í þau og hreinlega áreiti hann og börnin.
Ben segir einnig að börnin sín séu ekki í skemmtanabransanum, þau séu bara börn og ættu að fá að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir að foreldrar þeirra séu frægir. Börnin horfi ávallt niður, flössin pirri þau mikið sem og öskur og frekja í papparössunum.
Jennifer og Ben ákváðu að selja ekki myndir af börnunum sínum til tímarits eftir að þau fæddust því þau vildu vernda þau.
Ben segir að það sé gott og gilt ef aðrir kjósi að fá fúlgu fjár fyrir mynd af börnunum sínum og gefi jafnvel ágóðann til góðgerðarmála en þau hjónin vildu alls ekki láta ljósmyndara vera með linsuna sína ofan í börnunum sínum og fullt af fólki gargandi og gólandi í kringum þau til að fá bestu myndina og græða sem mestan pening fyrir tímaritið.
Ben finnst einnig mikilvægt að það sé spáð í hvern sé verið að mynda, börnin eru ekki Lindsay Lohan sem sækist eftir athygli ljósmyndara, þau vilji fá að vera í friði.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig