Virðist konan þín ekkert sérstaklega hrifin af kynlífi? Hefur hún sjaldan eða aldrei frumkvæði og virðist forðast að ‘þurfa’ stunda kynlíf?
Vandinn er mjög líklega sá að hún fái ekki fulnægingu við kynmök. Sá vandi er mun algengari en fólk gerir sér grein fyrir og karlmenn komast því miður oft ekki að þessu vegna þess að konan hefur verið að “feika það” of lengi og búin að mála sig út í horn og vill ekki særa mann sinn með því að leiða hann í sannleikann -eða vegna þess að hún heldur að það sé eitthvað að henni sem ekki hrjáir aðrar konur almennt. Svo gæti skýringin líka verið sú að hún veit ekki sjálf hvernig hún getur fengið fullnægingu.
En hvernig á að fullnægja konu? Hér kemur góð útskýring á rituðu máli um kynfæri kvenna og hvar réttu staðirnir eru:
Karlmenn halda að fullnægingin eigi sér stað í leggöngunum en þannig fullnægingu er erfitt að fá; svæðið sem þeir eiga að fókusera á er snípurinn, hann er staðsettur 1 ½ -2 cm fyrir ofan leggangaopið og frá honum liggja ótal taugaendar að “G-blettinum” en hann er staðsettur ‘á fyrstu hæð þegar inn er komið að innsta glugga’ og besta leiðin til að ná til hans er aftan frá og þrýsta upp því typpið þarf að fara smá sveigju eða boga, eða ef konan er ofan á og snýr baki í manninn.
En fyrst og fremst á að einbeita sér að snípnum. Þegar hann er nuddaður á réttann hátt þá rennur blóð í hann og hann tútnar út og verður rauður.
Það verður að passa sig að nudda hann ekki of fast og að hann sé blautur. Best er að nota fingur eða tungu eða bæði í einu og finna rétta taktinn og þrýstinginn með því að biðja konuna að segja sér til, ef þetta er rétt gert þá getur konan fengið fullnægingu á örskömmum tíma.
Það er bara mýta að það taki konur langan tíma að fá fullnægingu, ef það tekur langan tíma þá er það ekki gert rétt.
Að “vaða beint” í broddinn á snípnum getur verið sárt og gott er að strjúka hliðarnar til að byrja með, ímyndaðu þér að snípurinn sé klukka og stilltu vísana á 11 og 1. Þegar þú ert búinn að “hita konuna upp” með því að örva snípinn þá getur þú farið inn í leggöng og haldið áfram að nudda snípinn með fingrunum á meðan á kynmökum stendur til að konan fái frekar fullnægingu og reynt að komast “upp á fyrstu hæð og að innsta glugga” þar sem G-bletturinn leynist.
Ef þú ert karlmaður og hugsar “ þetta vissi ég nú alveg” og að þetta sé sko ekki vandamál hjá þér og þinni konu þá ert þú kanski einn af þessum 10 % karlmanna sem virðast vita þetta og kona þín er mjög heppin en ef þetta er alveg nýtt fyrir þér þá bara óska ég þér góðs gengis í bólinu á næstunni.
Bella hefur gert óformlega könnun á eigin reynslu, hún hefur stundað kynlíf í um 20 ár og við getum sagt að hún hafi átt að jafnaði 2 bólfélaga á ári, það gerir 40 félaga og aðeins 3-4 af þessum 40 gátu í raun fullnægt henni, en meirihlutinn hélt samt að hann hefði gert það!
Þetta er ekki karlmönnunum að kenna heldur konunum sem eru ekki nógu duglegar að “kenna þeim”. Það á ekki að ríkja svona mikil leynd yfir kynfærum kvenna, við verðum að upplýsa karlmenn um hvernig þau virka til að geta notið kynlífs.
Góða skemmtun!
(Lýsingar fengnar að láni úr bókinni “11 mínútur” eftir Paulo Coehlo)
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.