Basso & Brooke voru að sýna haustlínuna fyrir 2010 á tískuvikunni í London og slógu rækilega i gegn með klikkuðum mynstrum og fallegum sniðum.
Þeir segja að þetta sé innblásið af ferð þeirra um gömlu silkileiðina niður til Samarkand og hvort sem það er satt eða að þeir hafi einfaldlega heillast mjög af fegurðinni í Avatar, þá er þetta einstaklega vel samsett lína og margt sem maður myndi ólmur vilja klófesta…
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.