Leikhópurinn á Senunni sýnir farandútgáfu af dásamlega fallegu barna- og fjölskyldusýningunni Ævintýrið um Augastein í A-sal í Gerðubergi á aðventunni. Leikritið er jólaævintýri fyrir börn á aldrinum 2ja-12 ára og tekur um 40 mínútur í flutningi.
Verkið byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið. En í ævintýri leikhópsins er það drengurinn Augasteinn sem allt snýst um. Hann lendir fyrir tilviljun í höndum jólasveinanna hrekkjóttu, sem vilja ólmir taka hann að sér, en þegar Grýla kemst á snoðir um tilvist hans æsist leikurinn. Ná jólasveinarnir að bjarga Augasteini úr klóm Grýlu og jólakattarins áður en jólin ganga í garð?
Saga Augasteins: Ævintýrið um Augastein var frumsýnt fyrir 14 árum á ensku og frumsýnt í Drill Hall leikhúsinu í London, en ári síðar var verkið frumflutt í íslenskri útgáfu í Tjarnarbíói. Það sama ár kom ævintýrið út á bók, sem notið hefur mikilla vinsælda.
Felix Bergsson skrifaði Ævintýrið um Augastein í samstarfi við Kolbrúnu Halldórsdóttur leikstjóra og Helgu Arnalds brúðulistamann. Orri Huginn Ágústsson fer með öll hlutverk í sýningunni. Brúður og leikmynd eru eftir Helgu Arnalds, lýsingu hannaði Jóhann Bjarni Pálmason og tónlistina útsetti Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson fyrir Háskólakórinn undir stjórn Hákons Leifssonar. Hljóðmynd verksins er unnin af Sveini Kjartanssyni. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir.
HVAR: Menningarhús Gerðubergi
HVENÆR: Laugardaginn 3. desember kl. 14-14.40
HVAÐ KOSTAR: Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.