Ég hreifst af þessu litríka fagra heimili sem er birt í veftímaritinu Covet Garden og ákvað að deila þessum myndum með þér enda einstaklega krúttlegar pappakúlurnar sem hanga yfir rúminu.
Covet Garden er stútfullt af hugmyndum fyrir alla sem hafa áhuga á hönnun og heimili og skemmtileg lesning.
Smelltu á myndirnar til að stækka:
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.