Það er alltaf gaman fyrir okkur pjattrófur þegar við fáum góð viðbrögð frá lesendum okkar.
Ég var að versla inn fyrir heimilið þegar kona sem ég þekki ekkert vék sér að mér og bað um að fá fleiri myndir af barnaherbergjum. Hún óskaði eftir nokkrum hugmyndir til að fylla tómann vegg í barnaherbergi þar sem 6 mánaða dóttir hennar er hætt að sofa í vöggunni og hún nýbúin að gera góð kaup á nýjum húsgögnum á útsölum fyrir litlu dóttur sína.
Ég tók því saman innlit í nokkur litrík og skemmtileg barnaherbergi og vona þér líki við einhverjar af hugmyndunum Helga.
Það væri gaman ef lesendur eru með skemmtileg barnaherbergi og væru til í að deila þeim með okkur. Endilega sendið okkur myndir á pjattrofur@eyjan.is
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.