Þegar Tom Ford var hönnuður Gucci var hönnuð barnafatalína sem svo sannarlega sló í gegn hjá ríka fólkinu.
Mannskapurinn hreinlega gat ekki staðist að kaupa litla Gucci skó og gefa í sængurgjafir, og klæða börnin upp í litla Gucci gallajakka og buxur í stíl. Á síðasta ári hannaði Frieda Gianinni barnafatalínu og fékk til liðs við sig söng-og leikkonuna Jennifer Lopez og tvíburana hennar til að sitja fyrir í auglýsingaherferð begna barnafatalínu Gucci.
Mig hefur alltaf langað í Gucci burðarpoka en lét mér nægja að versla einn fínan hér heima. Barnafatalínan er hönnuð fyrir 0-24 mánaða og 2-8 ára gömul börn.
Gucci barnafötin eru hrikalega sæt og er hægt að kaupa þau af Vefverslun Gucci
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.