Um daginn birti Stella þessa skemmtilegu grein þar sem hún sýndi okkur hvernig á að gera eigin miu miu flík.
Þessi myndasyrpa frá miu miu sýnir okkur stemmninguna baksviðs rétt áður en farið er á svið en þar er förðun dúkkuleg og síð hliðarflétta var greinilega málið.
Einnig eru smart myndir úr auglýsingaherferð miu miu en þar er stíllinn allt annar, förðun mun náttúrulegri, augun nett smóký, smá gloss og bleikur kinnalitu.
Taktu eftir litnum á naglalakkinu – fíla litinn.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.