Ég og vinkona mín vorum í bústað um daginn og bjuggum óvart til mega ferskann ávaxta kokteil!
Við höfðum fyrir slysni keypt hvítvín sem var ekki alveg nógu gott, við fórum því í frystinn og náðum okkur í frosna ávexti sem þú kaupir í poka í hvaða búð sem er.
Smelltum þeim í hvítvínið og úr varð þessi svali, sæti, sumarlegi drykkur!
Það er hægt að kaupa allskonar frosna ávexti, við vorum með melónur,ananas, mandarínur, vínber og fleira gotterí. Namm namm…
Mun pottþétt sötra á þessu nokkrum sinnum í sumar í sólinni!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.