Kate Moss var uppgötvuð 1988 þá 14 ára gömul á JFK flugvellinum á leið heim úr sumarfríi frá Bahamaeyjum.
Hún er ein ríkasta og umdeildasta fyrirsæta breta, hún er frumkvöðull þegar kemur að fatastíl og margar konur reyna að líkja eftir stíl hennar. Hún hefur verið fengin til að hanna fyrir Top shop verslunarkeðjuna enda þykir töff pía.
Kate hefur prýtt yfir 300 forsíður tískutímarita en hún er einnig þekkt fyrir lífernið því hún elskar flott og góð partý. Oft hefur hún verið gagnrýnd fyrir makaval sitt.
En Kate er líka mamma hún á dóttur sem heitir Lila Grace og fylgir Lila Grace mömmu sinni iðulega á ferðalögum.
Mér varð illa brugðið þegar ég sá þetta myndband með Kate Moss því staðsetningin er enn og aftur flugvöllur og í þetta skiptið eru það paparazzi ljósmyndarar sem herja á hana.
Það er kannski ekkert svo svalt að vera Kate Moss?
Hér eru svo myndir af mæðgunum Kate og Lilu saman…
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.