Í Reel Sexy línunni frá MAC leynist augnblýantur sem ber nafnið Heirloom. Þegar þú skoðar litinn þá heldur þú að hann sé silfurlitaður en svo er ekki, þegar hann er kominn á augun þá birtist grá/lavender litur sem er afskaplega flottur.
Ég prófaði hann um daginn, setti fyrst þykka línu á augnlokið, síðan svartan eyeliner yfir og kom það mjög vel út.
Síðan setti ég litinn í neðri augnkrókinn og aðeins fyrir neðan augnhárin þannig að það myndaðist nokkurs konar “smokey”, eftir það setti ég maskara og MIKIÐ af honum til þess að gera förðunina ennþá dramatískari.
Ég var gríðarlega ánægð með þessa augnförðun, hún er einföld en samt sem áður sterk, ég mæli hiklaust með þessum blýanti hvort sem hann er notaður einn, með öðrum eyeliner eða í augnförðun.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig