Sumarsmellurinn í ár er vafalítið lagið Get Lucky með Pharrell Williams og Daft Punk.
Pharrell er ekki aðeins verulega myndarlegur heldur er hann ótrúlega hæfileikaríkur. Hann syngur, framleiðir og stjórnar upptökum og er líka þokkalegur leikari.
Ótrúlegt en satt þá er þessi flotti strákur orðin fertugur. Já FERTUGUR! Það er ekki séns að sjá það á honum því hann virkar ekki deginum eldri en 28 ára.
Svo býr hann líka ansi skemmtilega en Guðný Hrönn skrifaði um húsið hans fyrir tveimur árum hér á Pjattið.
Fyrsta popplagið, sem Pharrell stjórnaði upptökum og sló rækilega gegn var ’ I’m a Slave 4 U með Britney Spears árið 2001.
Sama ár kom fyrsta platan með N.E.R.D út en upp úr því fór hann að starfa með félaga sínum í samstarfi sem þeir kölluðu The Neptunes við að hljóðblanda og stýra upptökum laga með m.a. Nelly, Kelis, Jay-Z og Justin Timberlake. Lögin hafa hvert á fætur öðru slegið í gegn og tónlistarfólkið fengið endalaus verðlaun og viðurkenningar fyrir en í dag starfar Pharell sjálfstætt. Nýlega hefur hann m.a. starfað með Mac Miller, Miley Cyrus, The Game, Usher og Frank Ocean.
Nýjasta samstarfsafurðin er svo með strákunum í Daft Punk, lagið Get Lucky sem hefur slegið jafn rækilega í gegn hér sem erlendis.
En kíktu á strákinn… sætur!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.