Marlon Brando er sennilega þekktastur fyrir hlutverk sitt í Godfather myndunum sem Don Vito Corleone.
Marlon fæddist árið 1924 og átti skrautlega ævi. Átti m.a að hafa átt í ástarsambandi við hina fögu Marilyn Monroe um árabil.
Ég horfði nýlega á myndina Streetcar named Desire þar sem hann fer með aðalhlutverk og kallar svo eftirminnilega til Stellu sem var unnusta hans. Ég fékk smá kítl í magann við að heyra hann segja nafnið mitt svona ástríðufullt!
Mikið ofboðslega var maðurinn gullfallegur!
Hann hafði nútímalegann blæ yfir sér og hefði farið rakleiðis í kyntáknstöðuna væri hann leikari á okkar tímum líka. Myndin er frá árinu 1951 en hann er eins og klipptur úr nýjasta tískublaði.
Einn fegursti maður sem uppi hefur verið að mínu mati og þó eru til margir fallegir menn.
_______________________________________________________________
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.