Pjattrófurnar auglýsa eftir fjórum einstaklingum, tveimur konum og tveimur körlum, til að taka þátt í make-over!
Það sem þarf að gera til að eiga möguleika er að gerast vinkona/vinur okkar á Facebook, deila síðunni og skilja eftir broskall 🙂
Það sem þú færð, ef þú verður dregin út – er eftirfarandi:
1.
Mánaðarkort í Hreyfingu heilsulind, viðtal við þjálfara, prógramm og fitumæling: Hreyfing er með bestu líkamsræktarstöðvum landsins. Frábær aðstaða til heilsueflingar, slökunar og endurnæringar. Gufur og pottar og meiriháttar starfsfólk.
2.
Andlitsbað og fljótandi djúpslökun í Blue Lagoon Spa: Fljótandi djúpslökun er dásamleg upplifun fyrir fólk sem þjáist af streitu og þreytu. 40 mínútur í fljótandi djúpslökun jafnast á við átta tíma svefn. Andlitsbaðið endurnærir húðina, vekur hana til lífsins og dregur fram fullkominn ljóma. Að lokum fá stelpurnar svo litun og plokkun.
3.
Húðvörur frá Blue Lagoon: Sérvalinn gjafapakki frá Blue Lagoon Húðvörum, vörur sem henta þínum persónulegu þörfum.
4.
Frítt að borða í kvöldmat á GLÓ í Engjateig í eina viku: Gló er með vinsælustu veitingastöðum borgarinnar og þar er troðið út úr dyrum í hverju hádegi. Þar er hinsvegar líka opið á kvöldin og Solla ætlar að bjóða þér í kvöldmat í heila viku! Passaðu þig bara að borða ekki yfir þig 😉
5.
Klipping og litun hjá Salon Veh: Salon Veh hefur um árabil verið talin með bestu hárgreiðslustofum borgarinnar. Fagfólkið þar mun fara fimum höndum um hárið á þér og þú verður ‘born again’ eftir meðferðina.
6.
Ráðgjöf og stílisering hjá Díönu Bjarnadóttur pjattrófu: Díana gat stíliserað David Beckham og fleiri stjörnur meðan hún vann fyrir Gucci í London svo hún fer létt með að finna rétta stílinn fyrir þig.
8.
Förðun og förðunarráðgjöf frá L’Oreal: Förðun fyrir lokamyndatökuna og um leið fá stelpurnar smá fræðslu um förðun og hvað hentar þeim best.
9.
Aðhaldsfatnaður og sokkabuxur frá Oroblu fyrir stelpurnar: Þarf að segja meira? Þetta er auðvitað algjör snilld. Þú vippar þér í samfelluna og umsvifalaust hverfa nokkrir sentimetrar og þú færð rennisléttan kvið! Besta meikóver trikk í heimi.
10.
Myndataka af þessum flotta hóp fyrir lokaútkomuna: Við birtum þær svo hér á Pjattrófunum í lokin en fáum að fylgjast með ykkur meðan á undirbúningnum stendur.
Hver elskar ekki gott makeover? Og hver hefur ekki gott af svona tríti rétt fyrir jólin? Það besta er að þú getur drifið kallinn með í þetta líka, nú eða reynt að koma syni þínum að eða kærasta ef þér finnst hann þurfa á þessu að halda.
Tvær konur og tveir karlar fá þessa lúxusmeðferð frá Pjattrófum og samstarfsaðilum!
Drífðu þig nú á Pjattrófurnar á Facebook – skildu eftir broskall og deildu svo síðunni okkar á þinni Facebook síðu! 🙂
Svo er auðvitað ekkert verra að smella á like takkann hérna fyrir neðan og hvað þá að skilja líka eftir athugasemd… 😉
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.