Ofurskutlan Kate Moss gekk að eiga sinn heittelskaða Jamie Hinch um síðustu helgi. Kate er 37 ára en Jamie 42.
Þau geisluðu auðvitað bæði af hamingju, hún í kjól frá Galliano og skóm frá Manolo Blahnik en hann í fallegum bláum jakkafötum frá YSL. Meðal frægra og flottra gesta í brúðkaupinu voru t.d. Sadie Frost, Naomi Campbell, Jude Law, Mario Testino, Topshop milljarðamæringurinn Philip Green, Stella McCartney og Dame Vivienne Westwood. Ekki slæmur selskapur þar og eflaust skemmtileg veislan á eftir.
Hér sérðu nokkrar sætar myndir af þessu fallega og ofursvala pari sem bretar hreinlega elska… enda full ástæða til. Þau fegra heiminn!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.