Því ég eeelska þig svo miiikið að ég gæti naaaæstum dáiiiið
Ástar og kynífsfíkn. Hvað er það eiginlega? Hvernig er hægt að vera sjúk í ást eða kynlíf? Er kannski búið að skilgreina allt sem fíkn og má ekkert lengur?
Að bregðast við með því að fara í vörn hljóta að vera eðlileg viðbrögð manneskju sem heyrir í fyrsta sinn minnst á ástar og kynlífsfíkn, enda virðist þessi áratugur sem við lifum núna með litaður af allskonar vandamálaskilgreiningum sem enginn hefur áður heyrt um.
Laxness blessaður sagði í einhverri bókinni að mannkynið ætti eftir að farast úr sálgreiningum og sýfilis og það er kannski ekki svo langt frá sannleikanum nú á gullöld geðlyfja og lauslætis.
Þrátt fyrir það má alveg skoða ástar og kynlífsfíknar fyrirbærið betur, því að á sama tíma og ótrúlegust sálarástönd eru orðin vandamál verður ekki undan því litið að daginn út og daginn inn er haldið að okkur margskonar ástar og kynlífsáróðri sem erfitt er að loka augunum fyrir. Bíómyndir, sjónvarpsþættir og dægurlagatextar hamra á því að ástin sé málið og að það sé ekki hægt að lifa hamingjuríku lífi án þess að finna sér fullkominn, gallalausan maka og stunda kynlíf eins og kynbótahross.
Kynlífsaldan, eða klámvæðingin eins og margir vilja kalla þetta í fjölmiðlum hefur einnig orðið til þess að embættismenn og sómakærir kennarar geta byrjað daginn með því að skoða klám netinu meðan þeir sötra kaffibollann sinn: Eðlilega hljóta að verða margskonar afleiðingar af þessu offramboði lostans og vonlaust að reyna að horfa framhjá því.
Þessvegna ákvað ég að slaka aðeins á vörninni og kanna þessar fíknir aðeins.
Hvað er fíkn?
Byrjum á því að pæla aðeins í fyrirbærinu fíkn. Fíkn er stundum líkamlegt og undantekningarlaust andlegt ástand sem þróast í lífi einstaklinga á mislöngum tíma. Fíkninni tengist endurtekin hegðun og þráhyggjukennd hugsun sem snýst um ákveðna manneskju, eða í tilfelli áfengis eða eiturlyfjafíknar, um það efni sem einstaklingurinn notar mest.
Í byrjun veldur hegðunin og hugsunin vellíðan og “vímu” sem verður til þess að einstaklingurinn sækir aftur í að komast í ástandið. Lykillinn að því að eitthvað geti orðið að fíkn er að þetta svokallaða “vímu” ástand myndist og hver hefur ekki heyrt talað um að vera í “ástarvímu”.
Að komast í vellíðunar ástand er eitthvað sem gefur okkur aukinn kraft og mannskepnan sækir í þetta ástand aftur, þó að það sé oft skammvinn sæla sem varir ekki lengi. Í kjölfar fíknarinnar myndast þráhyggjuhugsun, þráhyggjuhegðun, tímaskortur, dagleg verk falla fólki úr hendi, sambönd glatast, fólk skilur hvert við annað og líkamlegri og andlegri heilsu fer hrakandi. Stigvaxandi fíknin verður undirliggjandi drifkraftur manneskjunnar og nánast ekkert annað kemst að í lífinu.
Kynlífsfíkn
Kynlífsfíkn er til á mörgum stigum og birtingarmyndir hennar eru allt frá þráhyggjukenndri sjálfsfróun til kynferðisglæpa, en núna ætlum við bara að skoða það sem er kallað fyrsta stigs kynlífsfíkn. Með því er átt við kynferðishegðun þar sem enginn er fórnarlamb í lagalegum skilningi þess orðs.
Kynlífsfíkill sem ekki er orðinn svo langt leiddur að hann sé farinn að stunda beina kynferðisglæpi getur stundað strippklúbba, skoðað klámblöð og klámmyndir. Hann getur fróað sér fram úr hófi, keypt vændi, stundað margendurtekið “einnar nætur gaman” eða átt mjög marga bólfélaga. Einnig getur hann dvalið langtímum saman á spjallrásum á netinu, stundað símasex og svo mætti lengi telja.
Kynlífsfíkillinn getur fundið sig í einu eða mörgum þessara atriða en hegðun hans er þráhyggjukennd, endurtekinn og henni er stjórnað af fíkn. Það sem í upphafi einkenndist af forvitni og smá spennu er nú orðið að þráhyggju, sektarkennd, sjálfsréttlætingum og tilfinningalega ruglandi ástandi. Þetta fer að taka meiri og meiri tíma í lífi fíkilsins, jafnvel þótt “kikkið” sem hann fær út úr þessu verði á sama tíma minna og minna.
Oftast leynir hann hegðun sinni fyrir þeim sem standa honum nærri. Hann deilir kannski toppnum af ísjakanum með vinum sínum en ekki því hversu mikill tími og orka fer í þetta.
Ef fíkilinn er giftur eða í föstu sambandi þá verður hann að halda hegðun sinni leyndri fyrir makanum með lygum og tilheyrandi blekkingum.
Ef fíkilinn er giftur eða í föstu sambandi þá verður hann að halda hegðun sinni leyndri fyrir makanum með lygum og tilheyrandi blekkingum. Hann þarf að útskýra í hvað peningarnir og tíminn fara, hvar hann var, með hverjum og hvað hann var að gera og á meðan fíknin kallar á meira og meira verður ánægjan innantóm og lýjandi. Vandamálin og allar óþægilegu tilfinningarnar byrja að vega mun þyngra en “kikkin” og hann er orðinn vandlega fjötraður af fíkninni.
Ástarfíkn
Í fyrstu virðist það vera undarleg þversögn að setja ást og fíkn saman í eitt orð en ef þú skilur hvernig fíknir virka í lífi fólks þá ætti þetta orð ekki að vera svo torskilið. Fíkn er ástsand sem myndast þegar manneskja verður háð tilfinningu sem skapast við ákveðna hegðun og í þessu tilfelli er tilfinningin ást. Eins og áður segir setur þjóðfélagið sem við lifum í ástina á milli tveggja einstaklinga í algjört öndvegi. Við sjáum ást eða rómantíska ást sem grundvallar undirstöðu þess að við höfum áhuga á því að fara í alvarlegt samband við aðra manneskju. Ef það er engnn rómantík í loftinu og okkur finnst við ekki vera ástfanginn þá er ekki líklegt að við sjáum hjónaband eða sambúð á næsta leyti. Að vera ástfanginn er ástand sem lætur manni líða eins og maður sé hátt uppi, í ástarvímu, alsælu. Maður fær aukinn kraft og veröldin breytir um lit. Við þurfum ekki annað en að kveikja á útvarpinu til að heyra eins og einn popptexta sem reynir að lýsa þessu ástandi.
Ástin verður að fíkn þegar þessi tilfinning sem á sér stað í upphafi sambands verður að markmiði. Þegar einstaklingurinn verður háður fyrstu dögunum þegar þú getur setið og horft endalaust inn í augun á hinum aðilanum án þess að þurfa endilega að segja neitt. Þegar bara það að heyra röddina á símsvaranum verður til þess að hjartað taki kipp. Þegar kossarnir láta þig svífa og þú hugsar ekki um annað en hann eða hana.
Rannsóknir hafa sýnt fram á það að hormónar og endorfín leysast út í ríkum mæli á meðan á þessu ástandi stendur og þessar boðefnabreytingar hjálpa fólki að “tengjast” hvort öðru fyrstu dagana, vikurnar eða mánuðina. Fólk getur orðið háð þessum líkamlegu boðefnabreytingum og þær verða m.a til þess að fíknin snýr lyklinum og fer í gang.
Það er hægt að þekkja ástarfíkla á því að þeir fara samband úr sambandi og stoppa sjaldan lengi við. Oft eru þeir marg giftir, þeir halda framhjá og mest öll einbeiting þeirra fer í að hugsa um næstu líklegu konuna eða manninn sem á eftir að koma inn í líf þeirra. Að fljúga inn og út úr samböndum verður fljótlega þreytandi og ástarfíkillinn situr eftir með sársaukann og missinn. Sumir ástarfíklar verða háðir fantasíu elskhugum, eða fantasíu samböndum. Fantansíu elskhuginn er manneskja sem er alltaf einhversstaðar langt í burtu og/eða ófáanleg.
Ástarfíkill af þessu tagi fer kannski ekki á milli sambanda en hann getur hangið á spjallrásum dögunum saman eða farið á hverja ástarmyndina á fætur annari til að drekkja sér í rómantík. Þessi hegðun hans er ekkert annað en tilraun til að láta sér líða vel. Hann upplifir tilfinninguna að vera “ástfanginn” en það sem kemur oftast óhjákvæmilega í kjölfarið er þunglyndi og vanlíðan. Ástarmyndir og spjallrásir á netinu eru ekki skaðleg fyrirbæri. Þeim er ætlað að vera skemmtun og upplyfting, en ástarfíkillinn notar þesssa miðla til að fá útrás fyrir fíknina. Á meðan sumir ástarfíklar fara samband úr sambandi, eða hanga í einu óheilbrigðu sambandi, skapar þessi gerð af ástarfíkli sér ímyndað samband og gerir svo allt til að láta fantasíuelskhugann passa inn í myndina. Jafnvel þótt að raunveruleikinn sýni fram á eitthvað allt annað.
Ástar og kynlífsfíkn
Ást og kynlíf fara hönd í hönd. Þegar við erum ástfangin þá stundum við oftar en ekki kynlíf með viðkomandi og það kynlíf köllum við að “elskast”. Fyrir kynlífs og ástarfíkilinn verður hinsvegar kynlíf innan ástarsambands fljótlega þreytandi og leiðinlegt. Um leið og hormónarnir hætta að pumpast út í blóðið með sama krafti og í byrjun þá hættir þetta fljótlega að vera fjör. Vímutilfinningin dofnar og raunveruleg vinna innan sambandsins þarf að byrja að eiga sér stað.
Fyrir kynlífs og ástarfíkilinn verður hinsvegar kynlíf innan ástarsambands fljótlega þreytandi og leiðinlegt.
Þá leitar kynlífsfíkillinn fljótt inn á sín svið, ástarfíkillinn fer að horfa í aðrar áttir og fíknarferlið fer aftur í gang (ef það hætti þá einhverntíma). Vonin sem ástarfíkillinn ól í brjósti sér um að nýja sambandið yrði það síðasta deyr og ástarfíkillinn situr uppi með bömmerinn, skömmina, missinn og sektarkenndina.
Bati
Ekki örvænta, það er hægt að redda þessu!
Bataferlið frá þessum fíknum er það sama og frá flestum öðrum fíknum. Tólf spora kerfið sem AA samtökin fundu í kringum 1935 til að vinna bug á alkóhólisma hefur dugað til að drekkja allskonar vandamálum og fíknum og ástar og kynlífsfíkn er enginn undantekning. Fyrsta skrefið er að viðurkenna að það sé vandamál fyrir hendi. Með því að vera hreinskilinn við sjálfan sig opnast gáttir inn í sálarlífið og það er útgönguleiðin úr vandanum. Sannleikurinn mun gera yður frjálsa eins og J.K sagði. Fíkillinn verður að sjá hvernig þunglyndi hans, stress, kvíði og aðrar óþægilegar tilfinningar eiga rætur sínar að rekja til þessarar þráhyggjuhegðunar og með því getur hann byrjað að sleikja sárin.
Það er hægt að fara á spjallrásir á netinu þar sem fólk sem hefur fundið sig í þessu hittist og reynir að leysa vandann í sameiningu. Einnig er hægt að komast í beint samaband við manneskju sem hefur komið sér úr vítahringnum og hún deilir með þér reynslu sinni og styrk. Sálfræðingar geta líka gert mikið gagn og þeir eru jú bara í símaskránni.
Til að vita meira má fara á netið og slá inn leitarorðunum sex and love addiction eða fara á vefsíðu tólf spora samtaka ástar og kynlífsfíkla: http://www.slaa.is eða www.slaafws.org.
Tékklisti
Til þess að glöggva þig betur á því hvort þetta vandamál geti verið eitthvað sem þú ættir að skoða betur má prófa að svara krossaspurningum sem fylgja í sjálfsprófinu hér að neðan. Það er engin sérstök niðurstaða eða úrskurður, en ef þú ert með marga krossa í já reytinum þá er ansi líklegt að þú mættir fara að pæla alvarlega í þessum málum.
Smelltu HÉR til að ná í sjálfspróf sem hjálpar þér að átta þig á hvort þú gætir verið með einkenni ástar, og/eða kynlífsfíknar.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.