Ein vinsælasta fréttin hér á Pjatt.is þessa vikuna fjallar um flíkur sem afmá hliðarspikið svokallaða og fegra um leið vöxtinn.
Ein af þeim sem hefur orðið sér úti um slíkar buxur er Ásdís Rán sem nýlega yfirgaf landið okkar eftir að hafa dvalið hér í nokkra mánuði. Ásdís var auðvitað á fullu allann tímann en meðal annars skellti hún sér í Grease gervi og setti þessa mynd af sér á Facebook en lét eftirfarandi orð fylgja með.
Grease lightning! Konukvöld Hairdoo og búið að fixa mig svona fína :)) plús geðveikar spandex buxur frá MuffinTopKiller…
Eins og sjá má er Ásdís hin föngulegasta á myndinni og buxurnar fara henni vel. Svo er bara spurning hvort kynsystur hennar í Búlgaríu verði ekki ólmar í eintak en MuffinTopKiller vörurnar seljast vel bæði hér sem erlendis enda segir orðið MuffinTopKiller allt sem segja þarf!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.