Stórir gluggar og mikil birta á fallegum stað með stórbrotnu útsýni. Einkalíf en á sama tíma endalaust rými.
Þetta er í einu orði sagt algjör draumur. Fullkomið.
Smærri útgáfu af svona húsi væri upplagt að byggja á Íslandi (það er jú kreppa). Svefnherbergin flest norðan til þar sem gluggarnir eru minni og dagstofur í suðurátt að framan með endalausu útsýni yfir dali og fjöll.
Ég skil ekki hversvegna fólk er svona fast í að byggja sumarhús í bjálkastílnum þegar hægt er að setja upp einingahús sambærileg þessu og nýta allt árið fyrir svipað verð. Stórir gluggar sem hægt er að draga til og opna alla leið út, hvítir veggir fyrir fallegar myndir og mátulegt rými fyrir alla. El perfecto!
Eitt er víst að það yrði erfitt að draga mig í bæinn ef ég ætti kost á að dvelja á svona dýrðarstað.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.