Vogue ritstjórinn og tískumógúllinn Anna Wintour er víst yfir sig hrifin af rapparanum Kanye West og tískuviti hans en kærastan er ekki í eins miklu uppáhaldi.
Önnu finnst eins og áður sagði Kanye vera dásamlegur. Hún elskar tískuvit hans og allt sem viðkemur honum og hans lífsstíl. Hinsvegar er Kim Kardashian kærasta og verðandi barnsmóðir rapparans alls ekki í eins miklu uppáhaldi hjá Önnu, henni finnst Kim vera jafn slæm og sandalar með hvítum sokkum!
Kim var gersamlega miður sín þegar Anna bauð Kanye til Metropolitan Museum of Art Costume Gala en ekki henni, það var víst tekið skýrt fram í boðskortinu að Kim var EKKI boðið með.
Kim er ekki sú eina í Kardashian famelíunni sem Önnu líkar ekki við, henni finnst þau öll frekar glötuð og skilur ekkert í þessari dýrkun á fólkinu.
Kardashian fjölskyldan er eiginlega bara fræg fyrir að vera “fræg” og eru margir komnir á sama mál og Anna, finnst þau vera orðin úr sér gengin sem vörumerki.
Samt sem áður heldur fjölskyldan ótrauð áfram, lætur pirraða tískumógúlinn ekki trufla sig og gefur meðal annars út bækur, ilmvötn, snyrtivörur og fatnað.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig