Það hefur ekki farið framhjá neinum kvikmyndaunnanda að þau Angelina Jolie og Brad Pitt gengu saman í það heilaga á dögunum.
Athöfnin fór fram á sveitasetri þeirra í Frakklandi og var að sögn viðstaddra gríðarlega falleg. Parið hefur selt Hello myndirnar fyrir gríðarháa upphæð sem þau gefa svo auðvitað í góðgjörðarmál en bæði eru mjög meðvituð um að bæta heiminn og það sem í honum er.
Þessar myndir eru alveg dásamlegar og við leyfum þeim að njóta sín í stærðinni en sætust er eiginlega sú þegar parið kyssist um leið og þau játast hvort öðru sem hjón og krakkahópurinn flissar í kring. Ótrúlega krúttlegt eitthvað ♥
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.