Leikkonan Angelina Jolie vill ekki sjá að það verði borið fram áfengi í brúðkaupsveislu þeirra Brad Pitt sem verið er að undirbúa afar leynilega!
Angelina vill ekki hafa áfengi í veislunni til þess að forðast uppákomur sem fara yfir strikið, veislan á að vera dönnuð og ekkert vesen takk fyrir! Ýmsir vinir Brad hafa einnig verið teknir út af gestalistanum svo sem Jonah Hill, Quentin Tarantino og Philip Seymour Hoffman.
Angelina hefur að sögn heimildarmanna slúðurpressunnar vestra talað við George Clooney og beðið hann vinsamlega að haga sér eins og maður á meðan á brúðkaupinu og veislunni stendur en George á það til að vera eilítill prakkari sem elskar að stríða fólki.
Hjónin tilvonandi hafa líka verið að þrátta um hvort að bróðir Angelinu eða bróðir Brad verði svaramaður hans.
Það vantar ekki vesenið og vandræðaganginn áður en þetta fræga par gengur upp að altarinu en Angelina veit upp á hár hvað hún vill og hvað hún vill alls ekki! Og áfengi og sprelligosar er eitt af því.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig