Leikkonan Angelina Jolie hefur látið fara lítið fyrir sér undanfarið og lítið sést til hennar og fjölskyldu hennar á þessu ári.
Það ku vera góð ástæða fyrir því en Angelina lét fjarlægja bæði brjóstin sín. Ástæðan er sú að hún fór í rannsókn sem leiddi í ljós að það væru 87% líkur á því að Angelina myndi fá brjóstakrabbamein en móðir hennar lést úr slíku krabbameini aðeins 56 ára gömul.
Angelina segir að Brad Pitt hafi verið við hlið hennar alla daga allan daginn í gegnum þessa erfiðleika, hann hafi tekið virkan þátt í öllu ferlinu og hún er afar þakklát fyrir að hafa hann í lífi sínu. Leikkonan fagra segir einnig að það sé mikilvægt að hafa gott stuðningsnet í kringum sig þegar svona áföll koma uppá.
Angelina segir að þetta hafi alls ekki verið auðveld ákvörðun en hún sé mjög ánægð með að hafa stigið þetta skref. Hún vill einnig hafa sögu sína opinbera og ekki halda þessu leyndu til þess að vekja til máls á sjúkdómnum og hvetja konur til að láta skoða sig fyrr heldur en seinna.
Angelina sem á sex börn segir að þessi ákvörðun hafi einnig verið tekin vegna barnanna, núna þurfi þau ekki að lifa í ótta við að missa móðir sína úr brjóstakrabbameini.
Það er afar mikilvægt fyrir konur að láta skoða sig að mati Angelinu og hún hvetur allar þær sem hafa átt náinn ættingja sem hefur greinst með krabbamein að láta skoða sig og skoða genamengi sitt. Flott hjá Angelinu, hugrökk kona.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig