Á föstudaginn langa var tilkynnt að Andri Snær Magnason fengi sérstök heiðursverðlaun Philip K. Dick-verðlaunanna fyrir bók sína Love Star sem framúrskarandi vísindaskáldsögu í kiljuútgáfu, en þetta eru einhver virtustu verðlaun sem veitt eru fyrir vísindaskáldskap í heiminum.
Vicky Cribb hefur fengið mikið lof fyrir enska þýðingu sína á bókinni og hefur henni verið líkt við verk Kurts Vonnegut og Douglas Adams.
Einnig hefur verið tilkynnt að Sagan af bláa hnettinum fái sérstök heiðursverðlaun Green Earth Book Award, en það eru verðlaun sem veitt eru framúrskarandi bókum sem vekja börn til vitundar um umhverfismál. Verðlaunin verða afhent í Salisbury í Maryland þann 5. apríl.
Þremur dögum síðar verður Sagan af bláa hnettinum frumsýnd á aðalsviði YPT-leikhússins, Young People’s Theatre, Toronto og verður sýnd á hverjum degi fram í byrjun maí. Þetta er í annað sinn sem verkið er sett á svið í Toronto en síðasta uppfærsla á því var tilnefnd sem sýning ársins í Toronto árið 2005.
Við óskum snillingnum honum Andra Snæ hjartanlega til hamingju með þetta!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.