1. Ekki öfunda aðra
2. Fyrirgefðu og gleymdu
3. Drekktu meira vatn, borðaðu meiri fisk
4. Hægðu á þér
5. Kláraðu það sem þú ert byrjuð á
6. Hreyfðu þig reglulega
7. Lærðu að segja nei, líka við börnin þín
8. Ekki kenna öðrum um þín vandamál
9. Hættu að setja út á líkama þinn og sjálfa þig
10. Ekki segja neitt ef þú getur ekki sagt eitthvað fallegt -það er ekki þitt að leggja dóm á aðra.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.