Það eru margir sem kannast við þá tilfinningu að eiga alltaf eitthvað eftir að gera. Það er líkt og verkefnin hlaðist upp og stundum verður staflinn svo hár að það er vart hægt að sjá fram úr þessu öllu.
Um daginn fékk ég skilaboð í talhólfið mitt frá konu sem ég kom ekki fyrir mig. Þau byrjuðu á því að hún talaði um að helgin nálgaðist óðfluga og hún vissi hreint ekki hvað hún ætti að gera til að komast yfir hlutina. Eftir nokkra þögn kom svo framhald.
„Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Ég er orðin svo þreytt á þessu öllu. Mér finnst bara ekkert ganga upp hjá mér, allt sem ég ætlaði að reyna að gera síðustu vikurnar hefur einhvern veginn bara runnið út í buskann og orðið að ekki neinu. Ég kem mér ekki að neinu. Nú eru mánaðarmótin alveg að koma og ég er langt frá því að ná að ljúka verkefnunum. Ef mér tekst ekki að skila á tíma næ ég ekki að borga VISA í tæka tíð og þeir gætu lokað á mig. Þá vantar mig að geta keypt í matinn fyrir mig og krakkana. Krakkarnir fara til pabba síns um helgina, Æi Jóna, hvað á ég að gera? Mér finnst þetta eitthvað svo vonlaust“…
NÚ ER AÐ DUGA EÐA DREPAST
En ég hafði engin tök á að svara talskilaboðunum – númeraleyndin sá til þess. Kannski ert þú lesandi góður í sömu aðstöðu og þessi stúlka, köllum hana bara Ósk.
„Kæra Ósk, það er ekkert sem heitir að gefast upp í miðju verkefni, það er aðeins eitt í boði og það er að klára dæmið og gera það með stæl. Ég heyri að þú ert með börnin þín nálægt þér, nýttu þér lífsgleði þeirra til að sjá meiri tilgang í þessu öllu saman og koma þér að verki. Þetta verður allt svo miklu betra þegar þú nærð að klára og getur slakað á með krökkunum, gert eitthvað með þeim sem þið hafið öll gaman af.
Síðan heyrist mér á öllu að þú þurfir að huga aðeins meira að sjálfri þér, byggja þig upp og fara að líta bæði yfir farinn veg , hvað þú sért að gera í dag og hvert þú viljir stefna. Það getur tekið smá tíma að finna út úr því.
Brettu upp báðar ermar og stingdu þér til sunds í verkefnahrúguna sem bíður þín. Farðu beint í djúpu laugina en byrjaðu nú samt á því að fara út í góðan göngutúr. Farðu ein í þennan göngutúr og nýttu hann til að hugsa um hvernig þér muni líða þegar þú nærð að ljúka mikilvægustu verkefnunum þ.e. þeim verkefnum sem gefa þér mestan pening fyrir mánaðarmótin.
- Hvaða verkefni eru það?
- Hvernig þarftu að skila þeim?
- Hvað þarftu að gera til að það megi takast?
Gakktu rösklega, hreyfðu handleggina fram og tilbaka, andaðu vel að þér fersku loftinu. Þegar þú kemur heim, sestu þá niður með kaffi eða tebolla og skrifaðu niður verkefnin sem bíða þín. Finndu liti og TEIKNAÐU og LITAÐU smá mynd við hvert verkefnanna. Hvert þeirra er mikilvægast? Hverju er auðveldast að ljúka? Forgangsraðaðu. Byrjaðu síðan á því sem þú velur nr. 1.
Nú er galdurinn að sameina það að vinna og dekra við sjálfa þig á sama tíma. Hljómar kannski undarlega – en hlutirnir hafa jú ekki verið að ganga upp hjá þér segir þú og því sting ég upp á því að þú prófir aðra aðferð en hingað til.
SVONA RÆÐSTU Í VERKIÐ
Taktu allt til sem tilheyrir verkefninu sem þú ætlar fyrst að vinna og ljúka við til fulls. Áður en þú byrjar á vinnunni skaltu fara í gott bað eða sturtu. Gefðu þér tíma til að snyrta þig og fara í föt sem þér líður verulega vel í. Settu tónlist (helst klassíska) í græjurnar. Hafðu hjá þér vatn eða annað hressandi að drekka. Komdu þér vel fyrir við vinnuborðið, lokaðu augunum, slakaðu vel á, andaðu djúpt og rólega, kallaðu fram í hugann mynd af því að þú sért að ljúka verkefninu og upplifðu ánægjutilfinninguna sem myndast hjá þér við það.
Sjáðu peningaseðlana fyrir þér, þú ert að taka á móti greiðslu. Brostu. Innstilltu þig á að vinna af kappi í 40 – 60 mín. Nú fyrst byrjar þú að vinna.
Nýttu helgina til að vinna í svona smá lotum og ljúktu helst alveg við eitt verkefni áður en þú hefst handa við annað. Farðu út að ganga 1 – 3 yfir daginn, stutta göngutúra, aðeins til að breyta til. Ef þú ert orðin strand, ákveddu þá að finna lausnina sem opnar þér leið áfram á meðan þú ert í göngutúrnum.
Ágæta Ósk, prófaðu þetta, þú hefur allt að vinna og engu að tapa. Þú getur þetta alveg. Þú veist svo hvar mig er að finna. Gangi þér vel – og bestu hvatningakveðjur.
Jóna Björg Sætran M.Ed. markþjálfi, coach(hjá)coach.is
Jóna Björg er menntunarfræðingur, M.Ed., frá KHÍ, er með alþjóðlega vottun sem ACC markþjálfi frá ICF (International Coach Federation) og er einnig Feng Shui ráðgjafi.
Í vetur hefur Jóna Björg svo lagt stund á Hugræna atferlismeðferð (HAM) í Endurmenntun HÍ. Jóna Björg starfar sjálfstætt við einkaleiðsögn, námskeiðahald, ritstörf, fyrirlestra og ráðgjöf jafnt hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Hún var leiðbeinandi hjá Brian Tracy International hér á landi og er fyrrverandi námstjóri hjá menntamálaráðuneytinu.
Jóna Björg fer ótroðnar slóðir, elskar að takast á við krefjandi verkefni og finnst langmest gefandi að vinna með fólki að bættri líðan, meiri hamingju og hugrró.
Einkunnarorð hennar eru: Blómstraðu í einkalífi og starfi, njóttu þess að vera þú!