Þegar þú ert heltekin af kvíða þá finnst þér kannski að allt sé vonlaust og þú finnur hvergi leið út úr erfiðleikunum.
…og það versta er að þú þorir ekki að segja frá þessu.
Af hverju er þú svona kvíðin fyrir því sem öðrum þykir bara sjálfsagður hlutur. Þú þorir ekki að tala um þetta af því þú ert hrædd um að fólki finnist þú skrítin og þessvegna er bara eins gott að mæta ekki í matarboðið, veisluna, eða hittingin… maður vill ekki að fólk geri grín að sér.
Þú ert nú líka smá veik núna – er það ekki annars? Ábyggilega með hita, allavega er þér orðið smá illt í hálsinum og það hefur verið að versna frá því í gær. Já – lang best að senda bara sms núna og segja að þú bara komist alls ekki í hittingin í kvöld, bara so sorrý … er bara orðin veik, ábyggilega komin með flensuna! Best að drífa í því snöggvast! Og þú tekur símann, sendir sms og er búin að ‘beila’ – eina ferðina enn.
Kannast þú eitthvað við þetta?
Kvíðir þú fyrir aðstæðum sem engan annan kvíðir fyrir? Miklar þú þetta svona fyrir þér? Þú ert ekki ein og það er í raun engin ástæða til að skammast sín fyrir að vera svona kvíðin. Það er fullt af fólki í kringum þig sem er alveg ótrúlega kvíðið.
Ég held ég geti líka alveg fullyrt það við þig að það er einhver kunningja þinna sem er mjög kvíðinn fyrir einhverju sem þér finnst eðlilegast af öllu! Svona eru nefnilega lífið og tilveran. Við erum ekki öll eins. Við fæðumst svo óhrædd við allt og alla en svo eftir því sem við kynnumst heiminum betur, uppalendum okkar, skólanum, fjölmiðlunum, vinahópnum og bara lífinu svona almennt, þá þróum við með okkur allskonar tilfinningar. Við verðum fyrir ýmsum skakkaföllum í lífinu og stundum svo hressilega að okkur reynist erfitt að fálma okkur inn á þennan eftirsótta meðalveg aftur, á þennan þrönga stíg þar sem allt gengur vel.
En, veistu hvað! Það er hægt að fá aðstoð til að ráða við kvíða. Það er engin ástæða til að láta kvíða heltaka huga þinn. Kvíði stafar af því að þú óttast hið óþekkta. Þú ert að hugsa um einhverjar aðstæður sem þú annaðhvort hefur lent í eða ert smeyk um að lenda í. Það eru ástæður fyrir þessum ónotum sem þú finnur. Kvíðinn fer af stað eftir að hugsanir sem tengjast þessum atvikum leita á huga þinn, erfiðar neikvæðar hugsanir sem draga smá saman úr þér allan kjark. En athugaðu að hugsanir eru einfaldlega bara hugsanir – og ekkert annað en hugsanir. Þó svo að þú óttist að ákveðnar aðstæður leiði til hrikalega erfiðra aðstæðna þá er það ekki öruggt að svo verði. Með því að skoða nánar rökin á bak við kvíðann, horfa á aðstæður úr fjarlægð, þá áttu auðveldara með að meta þetta allt saman á hlutlausari hátt en annars.
Þegar hugurinn uppfyllist aftur og aftur af kvíða þá fer þér að líða illa, þú verður kannski döpur, vilt ekki hitta neinn og smá saman ferðu hugsanlega að rækta með þér félagsfælni. Þér fer að líða illa innan um aðra. Þú ferð að kvíða fyrir því að fá kvíðakast. Þú ferð ekki á fætur, dregur bara sængina upp fyrir haus, slekkur á símanum og svarar heldur ekki dyrabjöllunni.
Er nokkurt vit í þessu? Þetta er svo mikill óþarfi og sóun á hæfileikum þínum! Ha, hæfileikum …? Já, ef þú ert ekki virk, ef þú ert ekki að nýta þessa frábæru hæfileika sem þú býrð yfir þá ertu að meina öðrum að njóta hæfileika þinna og þú ert að sóa dýrmætum tíma þínum sem þú gætir annars nýtt þér til að njóta þess að blómstra þvílíkt, bæði í einkalífi og starfi!
Og veistu hvað? Það þarf ekki að vera flókið að ráða bót á kvíða þínum. Þú getur lært að ráða við þessar erfiðu hugsanir sem leita á huga þinn. Þú getur komist út úr kvíðahringnum sem þú ert búin að velkjast um í alltof lengi. Hugræn atferlismeðferð er einstaklingsmiðuð og dæmi um slíka aðferð. Þar er unnið með vanda þinn og kvíða út frá þínum eigin forsendum. Þú þarft ekki að vera þarna.
Ef þig langar til að vita meira um HAM (hugræna atferlismeðferð) og hvernig hún gæti gagnast þér, sendu mér þá línu á jona@namstaekni.is og lýstu vanda þínum. Nú er um að gera að njóta lífsins, allt er að birta og blómlaukarnir farnir að skjóta upp kollunum í húsagörðum. Já – og svo er jú Lóan líka komin. Allt stefnir í rétta átt!
Með bestu kveðjum!
Jóna Björg Sætran, M.Ed., menntunarfræðingur og markþjálfi , HAM. Námstækni ehf. www.namstaekni.is
Jóna Björg er menntunarfræðingur, M.Ed., frá KHÍ, er með alþjóðlega vottun sem ACC markþjálfi frá ICF (International Coach Federation) og er einnig Feng Shui ráðgjafi.
Í vetur hefur Jóna Björg svo lagt stund á Hugræna atferlismeðferð (HAM) í Endurmenntun HÍ. Jóna Björg starfar sjálfstætt við einkaleiðsögn, námskeiðahald, ritstörf, fyrirlestra og ráðgjöf jafnt hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Hún var leiðbeinandi hjá Brian Tracy International hér á landi og er fyrrverandi námstjóri hjá menntamálaráðuneytinu.
Jóna Björg fer ótroðnar slóðir, elskar að takast á við krefjandi verkefni og finnst langmest gefandi að vinna með fólki að bættri líðan, meiri hamingju og hugrró.
Einkunnarorð hennar eru: Blómstraðu í einkalífi og starfi, njóttu þess að vera þú!