Ég er búin að finna mér nýjan ilm og það er gaman þvi ég verð alltaf svo glöð þegar ég finn mér nýjan ilm!
Ég er afskaplega vandlát þegar kemur að ilmvötnum og það má ekkert út af bera, ef ilmurinn er ekki 100% “ég” þá nota ég hann aldrei og glasið verður bara fallegt skraut sem ég set á hilluna mína.
En Amor Amor Sunrise frá Cacharel er að mínu mati dásamlegur ilmur. Hann er ferskur með angan af ananas, greipaldin og jasmínu og smá rós og patchouli undir niðri. Hann er eins og velheppnaður kokkteill, og þegar maður finnur rétta kokteilinn þá pantar maður hann aftur og aftur.
Eitt lítið ráð til að hjálpa til við að finna rétta ilminn fyrir þig, ef kærastinn vill liggja í hálsakotinu og anda að sér ilminum þá er hann örugglega réttur, maður á aldrei að fá sér ilm sem makinn fílar ekki… 😉
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.