Vivienne Westwood sýndi haustlínu sína á tískuviku Parísar og hún er alltaf jafn skemmtilega klikkuð, amma pönksins…
Brjálaðir litir ,hattar, kjólar, töskur og töff skór. Stíliseringin er snilld, minnir á barnaafmæli og förðun klikkaðrar konu sem er nýsloppin frá Gaukshreiðrinu:
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.