Já það er ekki öll vitleysan eins í glysborginni. Það heitasta í dag er að leikkonan Amanda Seyfried segist sakna brjóstanna sinna eftir að hún grenntist.
Amanda fann fyrir miklum þrýstingi frá glysborginni og öðrum “sérfræðingum” um að grennast en leikkonan segir að hún hafi verið með flottari líkama þegar hún var fimmtán ára gömul heldur en í dag, því þá var hún með línur!
Amanda segir jafnframt að þó að hún sakni fallegu, stóru brjóstanna sinna þá sé ágætt að hafa grennst og þau hafi minnkað því umfang þeirra hafi verið svolítið mikið.
Og þrátt fyrir að hafa verið “neydd” til að grenna sig þá segir Amanda að sér hafi aldrei liðið betur heldur en núna.
Það er nú ágætt, hún er að minnsta kosti með ágætis barm ennþá sem hún er ekkert að fela ef marka má þessar myndir.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig