Nú þegar öll verð hafa hækkað svo að manni blöskrar að kaupa nauðsynjavöru (eins og tannkrem á 500 kall og dömubindi á 800) vil ég benda þér á snilldarverslun sem ég var að uppgötva.
Í þessari verslun kostar allt 289 kr, alveg sama hvað það er. Þarna er hægt að fá allskonar tannkrem, dömubindi og fleiri snyrtivörur eins og t.d. sjampó og body lotion en ég mæli líka með að kaupa þar hreinlætisvöru, sósur, krydd og barnavöru eins og t.d. snuddur og blautklúta.
Það er ekki hægt að segja annað en að þessi verslun sé góð fyrir budduna og ótrúlegustu hlutir sem maður rekst þar á.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.