Að skella sér í trekant er eflaust sú fantasía sem trónir á toppnum yfir vinsælustu fantasíur bæði karla og kvenna.
Hjá konum er algengt að þær langi til að gera dodo með annaðhvort tveimur karlmönnum eða karli og konu, en karlar vilja helst fá að rúlla um lökin og dúlla sér með tveim konum. Sumir láta sér nægja að fantasera um þetta alla ævi og taka svo drauminn með sér í gröfina. Aðrir láta drauminn rætast.
1. Engar subburugls tilfinningar
Hvernig er hægt að láta drauminn um trekant rætast? Eftir að hafa frá gelgjunni látið sig dreyma um að hnoðast um í mjúku holdi og vera kysst af tveimur munnum kemur oft fyrir að fólk nennir ekki að bíða lengur.
Það ákveður að NÚ SKULI ÞETTA VERÐA AÐ VERULEIKA, rakar sig að ofan og neðan, skellir sér í þong og leðurbuxur, rýkur út í nóttina og peppar sig upp með því að dansa eggjandi og stara í augu. Þambar duglega af öli og lætur svo til skarar skríða með því að vaða upp að tilkippilegustu manneskjunni á staðnum og skella fram línu eins og: Hei sæta, háv bát, jú nó… ertu til að koma í trekant með okkur? Eða: Hefur þig langað til að sofa hjá konu? Eða: Finnst þér hann flottur? eða eitthvað í þessum dúr. Oftast er svarið nei, en miði er möguleiki svo stundum kemur já.
Í einstaka tilfellum heppnast trekanturinn ágætlega, en því miður er rosa algengt að fólk fái massívan móral daginn eftir. Þá líður því eins og það hafi verið að taka þátt í einhverju subbu rugli með bláókunnugu fólki og tilfinningarnar verða eftir því. Subburugls tilfinningar. Enda ekki skrítið að fólk fái móral, því ef alið hefur verið á fantasíunni í mörg ár er ofur eðlilegt að væntingarnar til stundarinnar stóru séu gríðarlegar.
2. Tala saman!
Fyrst og fremst er nauðsynlegt að byrja á því að ræða við makann um þessar hugmyndir og tryggja sér að hann eða hún sé fullkomlega sama sinnis.
Ef svo er ekki er eins gott að leggja hugmyndinni um leið, því ef bæði eru ekki 100% sammála um ágæti þess að fá þriðja aðila inn í leikinn er hægt að stefna sambandinu út á ystu nöf. Afbrýðissemi og tortryggni fara að gera vart við sig og þá er ekki mikið um stuð lengur.
Það er algjörlega nauðsynlegt að bæði séu sammála um að kynlíf í þessu samhengi sé stundað gleðinnar vegna, til þess að láta óra rætast og bæta kryddi í tilveruna, en ekki til þess að miða kelerís frammistöðun sína við aðra leikmenn og tefla þar með sambandinu í hættu. Traust er nefninlega undirstaða góðs kynlífs og ef eitthvað fer að hrikta í þeim stoðum, þá er fjandinn laus og rúmlega það.
3. Dvergur í hænubúning
Til að komast í trekant er eins og fyrr segir, ekki skynsamlegt að hella í sig áfengi og ráfa svo völtum fótum inn á skemmtistað til að finna ókunnuga manneskju sem hægt að draga með sér upp í rúm. Best er að fólk kynnist áður og sé ekki undir miklum áhrifum vímugjafa þegar stóra stundin rennur upp. Margir hafa nýtt sér einkamála auglýsingar á netinu og auglýsa þá annaðhvort eftir því að hann eða hana langi til að sofa hjá pari, eða þá að par auglýsir eftir konu eða manni til að leika sér með. Þetta kostar ekki krónu og hefur reynst sumum vel.
Ef þessi aðferð er notuð er best að skrifast á í töluverðan tíma til að sjá hverskonar hugmyndir fólk hefur um gamanið. Sumir vilja bara “venjulegt” kynlíf á meðan aðra langar til að flengja og binda. Það væri ekkert sniðugt að vera búin að plana trekant í þrjá mánuði án þess að ræða smekkinn. Mæta svo uppdubbaður og til í allt, en hitta fyrir sér grafalvarlegann en mjög massaðan dverg í hænubúning með flengibambus í hendi, harðneskjulegan svip og Rammstein í botni.
4. Röddin segir mikið
Þegar þið hafið kynnst aðeins í gegnum tölvupóst eða spjall er kominn tími til að hringjast á. Sumir nota óskráð gsm númer sem ekki er hægt að rekja ef vera skyldi að þér litist ekki á röddina.
Rödd segir mikið um fólk og það eitt að heyra í henni getur sagt þér hvernig manneskja þetta er sem þú ert að tala við. Barry White er t.d. með flotta og sexý rödd en Steve Buscemi ekki. Ef það kemur flámælt, smámælt og skræk rödd á hinn enda línunnar er líklegt að þín andlega standpína linist upp og húðin þorni. Röddin og talandinn getur líka sagt manni hvort fólk sé gersamlega húmorslaust eða ekki.
Ef það er galsi í þér, þá skaltu alls ekki fara í frjálslega leiki með einstaklingi sem er grafalvarlegur með þessi mál, eða þunglyndur. Það veit ekki á gott.
Fólk sem tekur lífinu of alvarlega, eða er á kafi í skammdegisþunglyndi er ekki líklegt til að vera skemmtilegir leikfélagar í trekant. Hugsanlega myndi það líka fá það allt of snemma eða bara fá það alls ekki. Hvar er fúttið í því? Þannig að ef þér finnst talandinn og röddin vera mjög ósexí skaltu bara afsaka þig og segjast halda að þetta muni ekki virka, eða ljúga því bara að þú hafir samband seinna og sleppa því svo. En ef allt gengur upp þá er ekki eftir neinu að bíða og þið ákveðið að hittast.
5. Vertu þú sjálf/ur
Staðir þar sem þið eigið ekki von á að hitta vinnufélaga eða fjölskyldumeðlimi eru góðir. Hlutlausir staðir þar sem ekkert ykkar er fastagestur eru bestir. Veitingastaðir eru tilvaldir, að undanskyldum stöðum eins og Múlakaffi eða American Style. Á kósí veitingastað getur hinn “heilagi” þríhyrningur kynnst yfir góðum mat.
Umræðuefnin ættu ekki að vera flókin og best er að allir séu bara þeir sjálfir eins langt og það nær. Ekki fara að tala um trúmál eða stjórnmál. Betra er að brjóta ísinn með því að tala um af hverju mann langar í trekant, hvort maður hafi kannski prófað það, eða eitthvað í þá áttina. Kynlíf er í sjálfu sér ótakmarkað umræðuefni. Sleppið því líka að vera ekkert að borða yfir ykkur af steik og sósum en haldið ykkur frekar við létta rétti.
Hvern langar til að verða allt í einu illt í maganum þegar stóra stundin er við það að renna upp? Þurfa að kúka? Það er rakið dæmi að rauðvín og dessertar, eða freyðivín og jarðaber fara vel í maga og hafa örvandi áhrif á réttu stöðvarnar til að kynda vel undir því sem koma skal.
Þegar diskarnir eru orðnir tómir og allir rauðir í kinnum, með blik í auga, hressir og ófeimnir er flott að skella sér bara beint heim til þess sem á stærsta rúmið, flestu kertin og bestu tónlistina, eða taka kannski á leigu hótelherbergi sem er ekki síðri kostur. Þá eru allir á nýjum stað að upplifa nýja reynslu.
6. Bannað að hita upp með klámmyndum
Þegar þið eruð svo öll kominn heim í stofu, eða á hótelið, er nauðsynlegt að gera lýsinguna flotta, kveikja á reykelsum og góðri músik, bera fram drykki og láta fara vel um sig. Ekki flóðlýsa allt, bjóða upp á mysu og láta Í Helvíti gemsarnir aldrei þagna með Bubba í geislaspilarann og byrja að skaka þér! Þó þér finnist það góður fílíngur þá er mikilvægt að hugsa vel um réttu stemmninguna. Barry White er betri en Bubbi í þessum aðstæðum.
Ef það örlar á smá feimni geta krakkalegir leikir virkað ótrúlega vel til að losa um hömlur. Sannleikurinn eða kontó, flöskustútur og gamli góði fatapókerinn gera enn sitt gagn. Það er ekki skynsamlegt að hita sig upp með því að horfa á klámmyndir fyrir svona leiki. Það getur tekið fólk úr sambandi við stað og stund og mannskapurinn fer að hegða sér eins og verið sé að leika í klámmynd. Það er ekki hollt fyrir andann og getur orðið fáránlegt. Þegar verið er að “afmeyja” fyrstu trekants reynsluna er mikilvægt að vel sé farið að öllu og tillit tekið til þess að við tökum sálina og persónuleikann með í allt sem við gerum. Sálarlaust eða kalt kynlíf hefur aldrei verið talið hollt fyrir andann.
7. Ekki skilja út undan
Nú þegar allir eru orðnir berrassaðir verður einhver að taka af skarið. Trekantar eru bestir þegar tveir einbeita sér að því að veita einum unað og sælu. Það kemur í veg fyrir að fólki finnist það skilið út undan. Hver vill vera skilinn út undan þegar allir eru að leika sér saman?
Að fá ilmolíu nudd af fjórum höndum er eitthvað sem getur sent fólk af stað inn í framandi víddir. Það er líka frábær forleikur sem hjálpar fólki að slaka á.
Ef við gefum okkur að í leikinn fari tvær konur og einn karlmaður, er best að önnur konan og karlinn taki fyrstu konuna að sér og sjái til þess að hún fái fullnægingu, eða fullnægingar. Svo fær önnur konan sinn skammt og síðast karlinn. Hann verður að spara sig til hinsta spretts því eins og allir vita, sem komnir eru til vits og ára, er ekki mikið hægt að hamast eftir að hann er búinn að skjóta úr sinni fallbyssu.
Allavega verður þá að bíða í góða stund þar til hann er tilbúinn í seinni hálfleik. Ef um par er að ræða er sniðugt að það ljúki leiknum saman. Þá er minni hætta á að tilfinningar raskist eitthvað og að annað verði afbrýðisamt.
8. Trekantar eru spari
Ef trekanturinn tekst vel upp er ekkert sem ætti að stoppa fólk í því að halda sambandi og hittast aftur. Góður trekantsfélagi er gulls ígildi. Þó er ekki mælt með því að fólk hittist of oft í þessum tilgangi, því það er eins með trekanta og að fara út að borða á fínum veitingastað. Ef maður er alltaf á Holtinu þá hættir það að vera sérstakt og missir ljómann.
Þess vegna ætti að einangra trekanta við nokkur skipti á ári. Hver myndi t.d. ekki vilja fara í trekant á föstudaginn langa? Upprisa holdsins og ekkert annað að gera á þessum degi þegar allt er lokað.
Annað sem vert er að benda á er að það er ekki sniðugt að tveir úr hópnum taki upp á því að halda sambandi sín á milli. Þá kemur tortryggnin af fullum krafti inn í myndina. Þetta snýst í alla staði um töluna þrjá en ekki tvo.
Trekantar ættu líka undir öllum kringumstæðum að vera spari og hugsaðir sem skemmtun fyrir fullorðið fólk sem veit að það er orðið fullorðið og er ekki með móral yfir því að hafa kynhvöt og ímyndunarafl. Að lokum er vert að minna á smokkinn því betra er öryggi en eftirsjá.
Svo væri líka skrítið ef einhver kæmi undir í svona leik. Tala nú ekki um ef það er ein kona með tveimur mönnum sem á í hlut: “Ha, já… ég veit ekki alveg hvor þeirra er pabbi þinn. Þú komst nefninlega undir í trekant kallinn minn…ha ha ha!”
-Góða skemmtun!
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.