Ali á 18 börn og 80 jakkaföt, hefur búið í Berlín í 44 ár og er algjörlega fab!
Zoe Spawton er ljósmyndari sem býr í Berlín. Á hverjum morgni gekk hún framhjá Ali, eldri manni sem alltaf var klæddur svo skemmtilega. Hún fékk að taka mynd af honum einn daginn og nú hefur Ali slegið í gegn. Þetta blogg er yndislega skemmtilegt!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.