Ég lenti í þeirri furðulegu reynslu nú á dögunum að verða alvarlega illt í fingrunum eftir að hafa notað naglaherði frá Trind. Kannski er ég með svo þunnt yfirborð á nöglunum… eða eitthvað? en mér varð allavega alveg skelfilega illt í nöglunum af að nota þetta. Og ekki bara nöglunum heldur lengst ofan í fingurna. Varð svona eins og dofin og fann hreinlega til.
Þetta hætti ekki fyrr en ég þurrkaði naglaherðinn af með acenton eftir að hafa hrist puttana og haft þá undir köldu vatni í hálftíma.
Nú veit ég ekki hvort ég er eina manneskjan í heiminum sem getur ekki notað þetta… eða hvað kom eiginlega fyrir.. en ef þú hefur lent í þessu líka þá endilega segðu mér hvað málið er.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.