Föstudagur til fjár og fagnaðar er mættur og hér eru nokkrir frægir og “semi” frægir sem fagna því að vera árinu eldri í dag.
Jennifer Saunders ættu flestir Íslendingar að kannast við úr þáttunum Absolutely Fabulous en daman fagnar því að vera 54 ára gömul í dag.
Tvíburasysturnar Tia og Tamera fagna 34 ára afmæli sínu í dag en þeir sem horfa á E! Entertainment ættu að kannast við þær.
Rapparinn 50 Cent er 37 ára í dag og við skulum vona að hann fagni honum með stæl.
Robin Antin er daman á bakvið The Pussycat Dolls og er hún 51 árs í dag-mætti samt aðeins slaka á bótoxinu þessi elska!
Enginn annar en Dalai Lama á einnig afmæli í dag en þessi friðelskandi maður er 77 ára gamall og fagnar deginum án efa í ró og næði.
Síðust en ekki síst er svo enginn önnur en hún Margrét Gústavsdóttir pjattrófan okkar með meiru.
Við óskum öllum afmælisbörnum dagsins innilega til hamingju með það að vera árinu eldri!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig