Falleg – með klassa – töff stíl og flottan rass! Ég er alveg að fíla Beyonce í þessu myndbandi sem er í 60’s fíling og tekur mið af húsmæðrum þess tíma.
En svo er líka hægt að sjá hana taka smá Betty Page og hinn fræga rassdans hennar á’etta.
Beyonce leikur ófullnægða húsmóður sem hreinlega öskrar eftir athygli og ást frá kallinum. Pían algerlega búin að missa kúlið og í örvæntingu sinni hefur daman sig alltaf til ef kallinn skildi nú líta til hennar. Í því skyni hefur hún fyrir því að hafa sig til klæðast í falleg undirföt, farða sig og naglalakka (fíla bláa litinn) í háum hælum og ögrandi undirfötunum skrúbbar hún húsið hátt og lágt.
Í öðru skoti er daman svo orðin ansi þreytt á biðinni eftir kallinum. Blindfull, grenjandi úr sér augun, maskarinn kominn niður á kinnar og alveg í vonda gírnum sem margar stelpur klikka á. Semsagt, að hringja fullar í gæjann með spurninguna sem mætti alveg bíða þar til runnið er af manni:
“Af hverju elskar þú mig ekki??”..
Og hér er svo hið skemmtilega retró myndband Beyonce!
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.