Ég dett stundum inn á youtube-síðu Emily Hartridge, 10 Reasons Why, og hef gaman af.
Emily fjallar aðallega um samskipti kynjanna sem er jú okkur flestum hugleikið viðfangsefni.
Áðan rakst ég á skemmtilegan þátt; You’re a single woman….10 Reasons why en hér fer Emily yfir 10 atriði sem eru líkleg til að koma í veg fyrir að við eignumst kærasta á kaldhæðinn, fyndinn og hreinskilinn hátt eins og henni einni er lagið, enda er Emily Hartridge bresk.
En athugaðu vinkona að það eru alltaf kostir og gallar við allt og því hef ég líka með 10 ástæður þess að það er betra að vera einhleyp 😉
[youtube]http://youtu.be/Pcff8di8XaQ[/youtube]
[youtube]http://youtu.be/dG-jj0j53Mk[/youtube]
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.